Skrifstofa
Íbúðir
Námsmenn
Leiðbeiningar
Reglur
Umsókn
Almennur markaður
Upplýsingar
Atvinnuhúsnæði
Tenglar
Fréttabréf
Heim
Fréttir
 
Byggingafélag námsmanna auglýsir íbúðir á almennum markaði
Byggingafélag námsmanna auglýsir íbúðir á almennum markaði
 


Úthlutunarreglur
fyrir stúdentaíbúðir Byggingafélags námsmanna

Byggingafélag námsmanna (hér eftir skammstafað BN) annast rekstur húsnæðis, sem skráð er á heimasíðuna www.bn.is, og er í eigu félagsins.

ATH:  Einungis hægt að hafa eina umsókn virka pr. kennitölu.

 


1. kafli. Almenn skilyrði.

1.1 Réttur til húsnæðis.
Rétt til að sækja um, fá úthlutuðu og halda húsnæði hjá BN hafa þeir sem falla undir skilyrði úthlutunarreglna þessara, m.a. varðandi það að sýna eðlilega námsframvindu, standa í skilum og hlíta húsreglum og öðrum þeim reglum sem BN setur um umgengni o.fl. í húsnæði félagsins.
Einungis ein umsókn er gild pr. kennitölu.
 
1.2 Aðildarskólar.
Stúdenta/nemandafélög innan aðildarskóla BN eru nú: Háskóli Íslands, Listaháskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Fjöltækniskóli Íslands auk séraðildar félagsmanna innan Iðnnemasambands Íslands.

1.3 Úthlutun og forgangur við úthlutun.
 1.3.1. Forgangsröðun. Samþykktum umsóknum um íbúðir og herbergi er raðað í forgang samkvæmt úthlutunarreglum þessum.
 
1.3.2. Erlendir námsmenn. BN ákveður árlega fjölda þeirra herbergja, sem úthlutað verður til erlendra námsmanna sem stunda nám í aðildarskólum BN.

1.4. Eðlileg námsframvinda o.fl.
1.4.1. Eðlileg námsframvinda. Gerð er krafa um að umsækjendur/leigutakar, sem hafið hafa nám, sýni eðlilega námsframvindu, en eðlileg námsframvinda telst vera ef umsækjandi hefur lokið á hverju ári, eða misseri, ef við á, a.m.k. 2/3 hlutum þess náms sem viðkomandi deild/skóli telur vera eins árs, eða eins misseris, nám.

1.4.2. Undanþágur. BN er heimilt að veita undanþágu frá skilyrðum um eðlilega námsframvindu og slík atriði, ef gildar ástæður, að mati BN, eru fyrir hendi.

1.5. Félagslegar aðstæður, tekju- og eignamörk.
1.5.1. Tekjumörk.
Tekjumörk, miðað við meðaltekjur heils árs, eru samkvæmt reglugerð 873/2001. Félagsmálaráðherra lætur árlega reikna út tekjumörk og birta.

1.5.2. Eignamörk. Eignamörk, miðað við heildareign, að frádregnum heildarskuldum, eru samkvæmt reglugerð 873/2001. Félagsmálaráðherra lætur árlega reikna út eignamörk og birta.

1.5.3. Undanþáguóskir umsækjanda. Óski umsækjandi eftir að BN veiti undanþágu vegna félagslegra aðstæðna skal hann, með umsókn sinni, skila umsögn frá félagsmálanefnd í viðkomandi sveitarfélagi.  Við mat á félagslegum aðstæðum skal meðal annars líta til núverandi húsnæðisaðstöðu umsækjenda, fjölda barna, heilsufars og vinnugetu.

1.6. Sambýlisfólk og hjón.
Ef umsækjandi er í hjónabandi, óvígðri sambúð eða staðfestri samvist samkvæmt lögum nr. 87/1996 er litið svo á að báðir aðilar séu umsækjendur og leigutakar, við úthlutun leiguhúsnæðis og skulu því báðir undirrita leigusamning.

1.7. Önnur útleiga.
Ef BN þykir sýnt að húsnæði sem fellur undir reglur þessar muni standa autt eða brýn nauðsyn er til að ráða bót á þörf fyrir íbúðarhúsnæði er BN heimilt að sækja, til Íbúðalánasjóðs, heimild til að víkja frá ákvæðum um tekjur og eignir vegna útleigu á húsnæði félagsins.


2. kafli. Leigutími.
2.1 Tímabundnir leigusamningar. Leigusamningar um húsnæði BN eru ætíð tímabundnir.

2.2. Einstaklings- og parherbergi.
2.2.1. Úthlutun vetrarlangt. Meginreglan er að leigutímabil fyrir herbergi er frá 1. september til 31. maí næsta árs á eftir.  Úthlutanir, og þar með leigusamningar, skulu því gerðir til framangreinds tímabils í heild, nema undantekningaástæður, samkvæmt gr. 2.2.2. eða gr. 2.2.3., geti átt við.

2.2.2. Misserisúthlutun. Heimilt er að úthluta, og þar með gera leigusamning, til skemmri tíma en að framan greinir, ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi, svo sem ef um erlenda nema er að ræða. Úthlutun samkvæmt þessu ákvæði skal miðast annars vegar við haustmisseri, sem telst vera frá 1. september til 31. desember, og hins vegar við vormisseri, sem telst vera frá 1. janúar til 31. maí.

2.2.3. Framlenging að vori. Heimilt er að semja um framlengingu að vori, ef skóli stendur lengur en til lok leigutímabils eða af öðrum ástæðum. Ef leigutaki telur sig þurfa framlengdan leigutíma að vori skal hann sækja um framlengingu, eigi síðar en 1. apríl, til skrifstofu BN.

2.3. Einstaklingsíbúðir (stúdíóíb.), paríbúðir (2. herb.) og fjölskylduíbúðir (3. herb.).
2.3.1. Ársúthlutunarregla.
Meginreglan er sú að íbúðum er úthlutað til eins árs í senn. Úthlutanir, og þar með leigusamningar, eru því gerðir til framangreinds tímabils í heild, nema undantekningaástæður samkvæmt gr. 2.3.2. eða gr. 2.3.3. geti átt við.

2.3.2. Undantekning frá ársúthlutunarreglu. Í undantekningatilvikum er heimilt að úthluta íbúðum til lengri eða skemmri tíma en meginregla gr. 2.3.1. mælir fyrir um. Þetta ákvæði getur átt við þegar úthlutun á sér stað utan aðalúthlutunartíma síðsumar, en þá er samt sem áður miðað við að leigutíma ljúki 20. ágúst, annað hvort sama ár eða næsta ár á eftir.

2.3.3. Bráðabirgðaúthlutun. Íbúar í húsnæði BN geta fengið bráðabirgðaúthlutun fram til áramóta þurfi viðkomandi að taka haustpróf. Sækja þarf um bráðabirgðaúthlutun í síðasta lagi 1. júlí viðkomandi ár.

2.4. Hámarksdvöl. Hámarksdvöl í húsnæði BN getur lengst orðið jafnlöng eðlilegum námstíma viðkomandi náms, að frádregnum þeim námseiningum sem lokið er þegar umsækjandi fær úthlutað húsnæði hjá BN í fyrsta sinn, þó ekki lengur en sex ár. BN getur veitt undanþágu í samræmi við ákvæði reglna þessara. Endurskráning í nám lengir ekki hámarksdvöl miðað við fyrra nám.


3. kafli. Um umsóknir, umsóknarfresti o.fl.

3.1.  Skil umsókna.
3.1.1. Hvernig sótt er um húsnæði. Umsóknir um íbúð eða herbergi skulu gerðar á umsóknarformi sem birt eru á heimasíðu BN (
www.bn.is) og er einungis tekið við umsóknum í rafrænu formi.

3.1.2. Umsóknir og biðlistar. Samþykktar umsóknir fara á viðeigandi biðlista, innan forgangshóps, samkvæmt reglum þessum í þeirri röð sem þær berast. Biðlistar eru þeir sem greinir í gr. 6.2.1.

3.1.3. Móttaka umsókna. Dagsetning og tími sem umsókn er móttekin er skráð rafrænt í umsóknarkerfi BN.

3.2. Umsóknartímabil.
3.2.1. Umsóknarfrestir almennt. Umsóknum um húsnæði skal skila á rafrænu formi á heimasíðu Byggingafélags námsmanna
http://www.bn.is. Umsækjandi ber ábyrgð á að umsókn sé rétt útfyllt og staðfest með tilvísunarnúmeri.

3.2.2. Umsókn um endurúthlutun. Leigutökum, sem óska eftir endurúthlutun húsnæðis, er skylt að skila inn rafrænni umsókn á heimasíðu BN, http://www.bn.is., í síðasta lagi þremur mánuðum fyrir lok gildandi leigusamnings.

3.2.3. Umsóknir nýnema. Nýnemar geta sótt um frá 1. júní ár hvert, eftir að þeir hafa skráð sig til náms í þeim skólum, sem taldir eru upp í gr. 1.2. í reglum þessum, og umsókn þeirra verið samþykkt af viðkomandi skóla. Liggi staðfesting um skólavist fyrir á öðrum tíma er viðkomandi heimilt að sækja um húsnæði.

3.3. Heimild BN til að sannreyna upplýsingar. Með því að skila inn umsókn heimilar umsækjandi BN að sannreyna þær upplýsingar, sem fram koma á umsókn eða fylgigögnum hennar. Því er BN m.a. heimilt að afla upplýsinga hjá Fasteignamati ríkisins, Hagstofu Íslands og viðkomandi skóla.


4. kafli. Umsóknum sem BN er heimilt eða skylt að vísa frá.
 
4.1. Ófullnægjandi umsóknir. Heimilt er að vísa umsókn frá ef hún er talin ófullnægjandi á einhvern hátt eða ef upplýsingar sem fram koma í umsókn reynast rangar. Í slíkum tilvikum fellur umsóknin út úr umsóknarkerfi BN og er því hafnað.

4.2 Rangar upplýsingar.
4.2.1. Fyrir úthlutun. Ef upplýsingar sem fram koma í umsókn eða fylgigögnum reynast rangar skal umsókn vísað frá.

4.2.2. Eftir úthlutun. Komi í ljós eftir að úthlutun hefur farið fram, en áður en leigusamningur er gerður, að upplýsingar er koma fram í umsókn eða fylgigögnum reynist rangar fellur úthlutun þar með úr gildi. Hafi leigusamningur, í slíku tilfelli, verið undirritaður fellur leigusamningur úr gildi þegar í stað. Hafi íbúð/herbergi verið veitt viðtöku er leigutaka skylt að rýma húsnæðið innan 30 daga frá því að honum barst skrifleg áskorun BN þar að lútandi.

4.3. Umsækjandi á húsnæði.
4.3.1. Húsnæði BN á höfuðborgarsvæðinu. Ef umsókn lýtur að leiguhúsnæði BN á höfuðborgarsvæðinu, sem telst vera Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Álftanes, Garðabær, Seltjarnarnes og Mosfellsbær, og umsækjandi á húsnæði á höfuðborgarsvæðinu er umsókninni vísað frá. Ef umsækjandi á húsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skal BN meta hvort umsóknin komi til álita við úthlutun.

4.3.2. Húsnæði BN á Laugarvatni. Ef umsókn lýtur að leiguhúsnæði BN á Laugarvatni og umsækjandi á húsnæði á Laugarvatni eða nágrenni er umsókninni vísað frá. Eigi umsækjandi húsnæði á öðru landsvæði metur BN hvort umsóknin komi til álita við úthlutun.

4.4. Óskilvísi umsækjanda. Heimilt er að vísa umsókn frá, ef umsækjandi skuldar, þegar umsókn berst, húsaleigu til BN fyrir einn mánuð eða lengra tímabil.
 
4.5. Brot á reglum. Hafi umsækjanda verið vísað úr húsnæði BN vegna brota á lögum eða reglum, þ.m.t. reglum settum af BN, er heimilt að vísa umsókn hans frá.  Fari fram ólögmæt starfsemi í íbúðinni af hálfu leigjanda eða einhvers á hans vegum skal heimilt að segja leigusamningi samstundis upp og leigutaka gert að rýma íbúðina innan 30 daga frá því að honum barst skrifleg áskorun BN þar að lútandi.


5.  kafli. Meðferð umsókna og samskipti umsækjenda við BN.
 
5.1. Umsýsla. Skrifstofa BN annast öll samskipti og alla umsýslu varðandi umsóknir, m.a. móttöku umsókna og fylgigagna, samþykkt umsókna, frávísun og röðun umsókna í forgang samkvæmt ákvæðum úthlutunarreglna þessara.

5.2. Gild umsókn. Þegar umsókn hefur hlotið samþykki BN fer umsóknin inn á biðlista, sem valinn er, sbr. gr. 6.2.1., en umsækjandi þarf að staðfesta hana reglubundið samkvæmt gr. 5.4.

5.3. Rafræn samskipti. Öll samskipti umsækjanda og BN fara fram með rafrænum hætti á því netfangi sem umsækjandi gefur upp í umsókn. Einnig sendir BN sms-skilaboð í uppgefið gsm-númer sé þess óskað.

5.4. Reglubundin staðfesting á að umsókn sé í gildi. Þegar umsókn hefur hlotið samþykki BN, þarf umsækjandi að staðfesta, á tímabilinu 1. til 5 dag hvers mánaðar, að umsókn hans sé í gildi á viðkomandi biðlista. Vakin er athygli á að ef umsókn er ekki staðfest í samræmi við framangreint verður henni eytt úr umsóknarkerfinu og fellur þá umsækjandi út af biðlista.
 
5.5. Umsækjandi fær tilboð um úthlutun á húsnæði. Fái umsækjandi tilboð um úthlutun á húsnæði skal hann staðfesta samþykki sitt fyrir þeirri úthlutun innan þriggja daga frá dagsetningu úthlutunartilboðs. Ef umsækjandi staðfestir ekki tilboð í samræmi við framangreint fellur úthlutunartilboðið niður.

5.6. Umsýslugjald.
5.6.1. Umsýslugjald.
Þegar umsækjandi staðfestir tilboð um úthlutun húsnæðis, sbr. gr. 5.5., samþykkir hann um leið að greiða BN umsýslugjald kr. 4.000, sem er óafturkræft.

5.6.2. Hvenær greitt skal. Umsýslugjald samkvæmt framangreindu skal greitt í hvert sinn sem umsækjandi staðfestir úthlutun, þ.e. hvort sem um er að ræða nýúthlutun, endurúthlutun eða flutning. Umsýslugjaldið er innheimt við útgáfu leigusamnings.

5.7. Athugasemdir umsækjanda. Vilji umsækjandi bera fram kvartanir eða athugasemdir, vegna meðferðar umsóknar eða annarra atriða, skal hann senda stjórn BN skriflegt erindi, sbr. gr. 10.2., í reglum þessum.


6.2. Biðlisti.

6.2.1. Skráning á biðlista. Þegar umsókn er samþykkt færist hún sjálfkrafa inn á biðlista, en umsækjandi ber sjálfur ábyrgð á að viðhalda biðlistaskráningu með reglubundinni staðfestingu, sbr. gr. 5.4.
Biðlistar eru fjórir, sem hér eru taldir upp:
a) Reykjavík miðbær,
b) Reykjavík annað,
c) Hafnarfjörður,
d) Laugavatn.
Uppbygging á biðlistum fer eftir staðsetningu eigna BN hverju sinni og getur stjórn BN ákveðið, án samþykkis fulltrúaráðsfundar, aðlögun/breytingar á þeirri uppbyggingu.

6.2.2. Almennur forgangur á biðlista. Sá umsækjandi sem efstur er hverju sinni, á viðkomandi biðlista, hefur forgang að húsnæði sem losnar.

6.2.3. Sérstakar félagslegar aðstæður. BN er heimilt að víkja frá röðun á biðlista eða setja nýjan umsækjanda á biðlista ef sérstakar félagslegar aðstæður eru fyrir hendi.

6.3. Umsóknir um flutning. Allar umsóknir um flutning innan húsnæðiskerfis BN fara í svokallaðan T-flokk. Allar T-flokks umsóknir raðast á viðkomandi biðlista, sbr. gr. 6.2.1., þannig að þær fara í þriðja hvert sæti innan viðkomandi biðlista, í þeirri röð sem þær berast. 

6.4. Brottfall af biðlista. Í þriðja sinn sem umsækjandi hafnar tilboði um húsnæði fellur hann út af viðkomandi biðlista.

6.5. Uppfærsla. Óski umsækjandi ekki eftir skráningu á biðlista, eða hann fellur út af biðlista af einhverjum ástæðum, færast þeir sem neðar eru upp um eitt sæti á viðkomandi biðlista.


7. kafli. Forgangsröðun.

7.1. Forgangsröðun samþykktra umsókna. Samþykktum umsóknum um húsnæði BN er raðað í forgangsröð samkvæmt reglum þessa kafla, sbr. þó ákvæði gr. 6.2.3.

7.2. Einstaklingsíbúðir.
A: Núverandi íbúar hjá BN, sem sækja um framhaldsleigu í sömu íbúð.
T: Núverandi íbúar hjá BN, sem sækja um flutning innan BN (færast í þriðja hvert sæti á biðlistanum).
C: Umsækjandi og maki (sambýlingur), báðir í námi í aðildarskóla BN. Umsækjandi í námi í aðildarskóla BN og er einstætt foreldri.
D: Umsækjandi í námi í aðildarskóla BN (einstaklingur) og maki (sambýlingur) sem ekki er í aðildarskóla BN.
E: Aðrar umsóknir, m.a. erlendir stúdentar.

7.3. Paríbúðir
A: Núverandi íbúar hjá BN, sem sækja um framhaldsleigu í sömu íbúð.
T: Núverandi íbúar hjá BN, sem sækja um flutning innan BN (færast í þriðja hvert sæti á biðlistanum). 
C: Umsækjandi og maki (sambýlingur), báðir í námi í aðildarskóla BN. Umsækjandi í námi í aðildarskóla BN og er einstætt foreldri.
D: Umsækjandi í námi í aðildarskóla BN og maki (sambýlingur) sem ekki er í aðildarskóla BN.
E: Aðrar umsóknir, m.a. erlendir stúdentar.

7.4. Fjölskylduíbúðir.
A: Núverandi íbúar hjá BN, sem sækja um framhaldsleigu í sömu íbúð.
T: Núverandi íbúar hjá BN, sem sækja um flutning innan BN (færast í þriðja hvert sæti á biðlistanum). 
C: Umsækjandi og maki (sambýlingur), báðir í námi í aðildarskóla BN með eitt eða fleiri börn. Umsækjandi í námi í aðildarskóla BN og er einstætt foreldri með tvö eða fleiri börn.
D: Umsækjandi í námi í aðildarskóla BN og maki (sambýlingur) sem ekki er í aðildarskóla BN, með eitt eða fleiri börn.
E: Aðrar umsóknir, m.a. erlendir stúdentar.

7.5. Herbergi (einstaklings eða parherbergi).
A: Umsækjandi sem var leigjandi að einstaklingsherbergi á síðasta skólaári. Umsækjandi og maki (sambýlingur), báðir í námi í aðildarskóla BN og voru leigjendur að parherbergi á síðasta skólaári. Erlendir námsmenn samkvæmt ákvörðun stjórnar sbr. gr. 1.3.
T: Núverandi íbúar hjá BN, sem sækja um flutning innan BN (færast í þriðja hvert sæti á biðlistanum). 
C: Umsækjandi og maki (sambýlingur), báðir í námi í aðildarskóla BN, umsókn um parherbergi. Umsækjandi í námi í aðildarskóla BN, umsókn um einstaklingsherbergi.
D: Umsækjandi í námi í aðildarskóla BN og maki (sambýlingur) sem ekki er í aðildarskóla BN, umsókn um parherbergi.
E: Aðrar umsóknir.


8. Kafli. Óskir um flutning innan húsnæðiskerfis BN.

8.1. Leigusamningar bundnir við nafn úthlutunarþega. Leigusamningar eru bundnir við nafn úthlutunarþega og er leigutökum hjá BN er óheimilt að skipta, eða semja um skiptingu, á íbúðum/herbergjum innan húsnæðiskerfis BN sín á milli.

8.2. Óskir um flutning.  Óski leigjandi/leigjendur eftir flutningi á milli íbúða/herbergja skal viðkomandi senda inn nýja umsókn og verður umsóknin metin og getur skrifstofa BN samþykkt flutninginn gegn greiðslu flutningsgjalds, kr. 10.000.-  Undanþegið flutningsgjaldi er barnlaust fólk sem á von á barni og fjölskyldufólk sem á rétt á að flytja úr tveggja herbergja í þriggja herbergja íbúð. Með umsókn skal leigutaki láta fylgja skýringar/ástæður flutningsóskar.

8.3. Almenna reglan. Almenna reglan er sú að flutningur á milli íbúða/ herbergja kemur aðeins til greina við næsta aðalúthlutunartímabil að sumri. Með umsókn skal leigutaki láta fylgja skýringar/ástæður flutningsóskar.

8.4. Undantekning vegna sérstakra aðstæðna. Verði sérstakar breytingar á aðstæðum leigutaka, t.d. skilnaður eða sambúðarslit, eða þungun, er BN heimilt að taka umsókn um flutning til greina utan aðalúthlutunartíma.

8.5. Umsókn um flutning samþykkt, ný úthlutun. Þegar umsókn um flutning er samþykkt og umsækjanda hefur í framhaldinu verið úthlutað húsnæði skal gera nýjan leigusamning um viðkomandi íbúð og gilda þá reglur 9. kafla, eftir því sem við á.


9. kafli. Eftir úthlutun, sem umsækjandi hefur staðfest.

9.1. Nýr leigutaki, upphaf leigutíma og gildi leigusamnings. Fái umsækjandi úthlutuðu herbergi eða íbúð er hann ábyrgur fyrir greiðslu leigu frá og með þeirri dagssetningu sem tilgreind er sem upphafsdagur leigutíma í úthlutunartilboði. Þó er gildi leigusamnings háð því að umsækjandi skili BN leigusamningi, sem undirritaður er með fullnægjandi hætti, tryggingu og greiðslu á umsýslugjaldi.

9.2. Leigusamningur. Fái umsækjandi úthlutað herbergi eða íbúð hjá BN er honum skylt að undirrita, með fullnægjandi hætti, leigusamning sem BN lætur honum í té. Leigusamningurinn kveður nánar á um réttindi og skyldur leigutaka og leigusala á leigutímanum.

9.3. Umsýslugjald. Um leið og umsækjandi skilar undirrituðum leigusamningi á skrifstofu BN skal hann greiða umsýslugjald kr. 4.000,- Umsýslugjaldið er óafturkræft. Umsýslugjald skal einnig greiða við endurúthlutun húsnæðis og við flutning innan húsnæðiskerfis BN.

9.4. Greiðsla tryggingar eða afhending bankaábyrgðar. Um leið og umsækjandi skilar undirrituðum leigusamningi á skrifstofu BN skal inna af hendi tryggingarfé eða afhenda frumrit bankaábyrgðar, sbr. gr. 9.9.1.

9.5. Lyklar, afhending. Umsækjendur fá ekki afhenta lykla að leiguhúsnæði nema þeir uppfyllt ákvæði gr. 9.2. - 9.4. innan tilskilins tímafrests.

9.6. Tímafrestur. Uppfylli umsækjandi ekki ákvæði gr. 9.2. - 9.4. innan 10 daga frá því að hann fékk eintak leigusamnings til undirritunar afhent er litið svo á að hann afturkalli umsókn sína og fellur úthlutun til hans því niður. Húsnæðinu verður því úthlutað til annars umsækjanda.

9.7. Endurúthlutun
9.7.1. Nýr leigusamningur. Hafi umsækjandi sem býr í húsnæði BN fengið endurúthlutun skal hann skila nýjum leigusamningi undirrituðum innan 10 daga frá því að nýr leigusamningur var afhentur honum.

9.7.2. Endurnýjun bankaábyrgðar og greiðsla umsýslugjalds. Þegar leigusamningi er skilað undirrituðum til BN skal leigutaki jafnframt framvísa endurnýjaðri bankaábyrgð, hafi hann ekki greitt tryggingafé í peningum, og greiða umsýslugjald, sbr. gr. 9.4.

9.7.3. Tímafrestur. Umsækjanda er skylt að uppfylla ákvæði gr. 9.7.1. og  gr. 9.7.2. innan 10 daga frá því nýr leigusamningur var afhentur honum, geri hann það ekki  er litið svo á að umsækjandi hafi afturkallað umsókn sína um endurúthlutun og skal hann þá rýma húsnæðið samkvæmt dagsetningu gildandi leigusamnings, enda verður húsnæðinu úthlutað til annars umsækjanda.
 
9.8.Trygging í reiðufé og/eða ábyrgðayfirlýsing banka.
9.8.1. Trygging í reiðufé.
Tryggingarfé vegna íbúða/herbergja er ígildi þriggja mánaða,- vegna vangoldinnar leigu, þ.m.t. vegna dráttarvaxta og annars kostnaðar sem af vanskilum leiðir, og vegna ófullnægjandi þrifa sem og tjóns sem á hinu leigða kann að verða á leigutímanum. BN varðveitir tryggingafé í samræmi við ákvæði leigusamnings og laga nr. 36/1994.

9.8.2. Ábyrgðayfirlýsing banka. Umsækjanda er heimilt að kaupa tryggingu hjá þeim banka sem BN vísar til, eða viðskiptabanka umsækjanda. Fjárhæðir ábyrgðartrygginga skulu vera þær sömu og gr. 9.8.1. kveður á um. 

9.8.3. Niðurfelling bankaábyrgðar, skil á tryggingarfé. Bankaábyrgð fellur ekki niður gagnvart BN fyrr en eftir að úttekt á leiguhúsnæði, við lok leigutíma, hefur farið fram og niðurstaða þeirrar úttektar sé að eigi þörf á að ganga að bankatryggingu vegna tjóns á hinu leigða eða vanhalda í þrifum, og ljóst er að leigutaki er í skilum. Þegar framangreind atriði reynast í lagi endursendir BN banka frumrit ábyrgðayfirlýsingar og heimilar þar með niðurfellingu bankaábyrgðar, þegar við á, og skal því lokið innan tveggja vikna frá því leigutaki rýmdi húsnæðið og lét vita að úttekt gæti farið fram. Sömu reglur gilda varðandi skil á tryggingarfé.

9.9. Afhending húsnæðis við upphaf leigutíma.
9.9.1. Afhending húsnæðis. BN afhendir leigutaka húsnæði á fyrsta degi leigutímabils, enda hafi leigutaki staðið við skyldur sínar samkvæmt gr. 9.2. - 9.4.

9.9.2. Smávægilegur afhendingardráttur. Ef nauðsynlegar viðgerðir eða endurbætur fara fram á húsnæðinu er BN heimilt, þrátt fyrir ákvæði gr. 9.9.1., að draga afhendingu í allt að 5 daga, án þess að afsláttur af leigugjaldi verði veittur. Tilkynna skal leigutaka væntanlegan drátt á afhendingu svo fljótt sem auðið er.

9.9.3. Lengri afhendingardráttur. Dragist afhending lengur en 5 daga vegna aðstæðna sem rekja má til BN er veittur afsláttur af leigugjaldi fyrir þann tíma sem afhendingardráttur varir umfram 5 daga.

9.10. Framsal leiguréttar óheimilt.
Leigusamningar eru bundnir við nöfn þeirra sem fengu viðkomandi húsnæði úthlutað. Leigutökum er með öllu óheimilt að framselja leigurétt sinn, í heild eða að hluta. M.a. er leigutökum algerlega óheimilt að skipta eða semja um skipti á herbergjum/íbúðum innbyrðis.

9.11. Um leigusamninga BN.
9.11.1. Bindandi, tímabundnir leigusamningar. Leigusamningar um húsnæði BN eru ætíð tímabundnir, þ.e. gerðir til tiltekins tímabils sem tilgreint er í leigusamningi, og eru bindandi fyrir báða aðila út þann tíma, enda vanefni hvorugur samningsskyldur sínar.

9.11.2. Uppsagnir. BN getur, í sérstökum tilvikum, fallist á óskir leigutaka um að losna frá leigusamningi áður en leigutíma lýkur. Uppsagnarfrestur, fallist BN á ósk leigutaka, er þrír mánuðir en getur þó aldrei orðið styttri en einn mánuður, miðað við mánaðamót.


9.11.3. Verulegar vanefndir heimila riftun. Vanefni aðili leigusamnings samningsskyldur sínar verulega er gagnaðila hans heimilt að rifta samningi og er leigutaka þá gert að rýma hið leigða án tafa.

9.11.4. Nánari reglur. Nánar er kveðið á um réttindi og skyldur samningsaðila í leigusamningi.


10. kafli. Ýmis ákvæði.
 
10.1. Trúnaður.
Farið skal með umsóknir og upplýsingar sem þeim fylgja sem trúnaðarmál og hvílir þagnarskylda á stjórnar- og starfsmönnum.

10.2. Athugasemdir og ágreiningsmál.
Hafi umsækjandi athugasemdir við úthlutun skrifstofu BN eða vegna annarra atriða skal hann senda stjórn BN skriflega athugasemd innan 7 daga frá þeim degi sem atvikið, sem hann vill gera athugasemd við átti sér stað, eða viðkomandi varð um það kunnugt.  Stjórn skal taka slíkar athugasemdir til afgreiðslu á fyrsta stjórnarfundi sem upp ber eftir að athugasemd umsækjanda barst BN. Stjórnin sker úr öllum ágreiningsmálum sem upp koma varðandi umsóknir, úthlutanir og önnur atriði er varða umsækjendur, leigutaka og skrifstofu BN. Niðurstaða stjórnar er endanleg.

10.3. Tengsl við reglugerð 873/2001 um lánveitingar til leiguíbúða o.fl.  Úthlutunarreglur þessar taka mið af reglugerð nr. 873/2001, með síðari breytingum, um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur. Félagsmálaráðherra  lætur reikna og birta nýjar fjárhæðir vegna eigna og tekjumarka ár hvert, og gilda þær fjárhæðir um eigna- og tekjumörk umsækjenda hjá BN.

10.4. Endurskoðun úthlutunarreglna BN.
Úthlutunarreglur BN eru samþykktar á fulltrúafundi félagsins ár hvert að fenginni tillögu stjórnar og/eða fulltrúafundar.
 
Samþykkt á fulltrúafundi 3. apríl 2007.

Notandi
Lykilorð
Tilvísunarnr.




Byggingafélag námsmanna - Háteigsvegi 7, 2 hæð pósthólf 5480, 125 Reykjavík. Kt. 700707-0750 Sími: 552 6210 - Fax: 562 2909