Tilkynning frá Veitum

15.09.2020

Kæri viðskiptavinur

Vegna vinnu við rafbúnað í dælustöð Veitna í Öskjuhlíð má búast við minni krafti á heita vatninu á hluta höfuðborgarsvæðisins milli klukkan 22:00 og 23:59 mánudaginn 21.september næstkomandi.
Þessi vinna ætti ekki að orsaka vatnsleysi en fólk getur upplifað minni þrýsting á heita vatninu.
Við viljum einnig minna þá sem eru með gólfhitakerfi í húsum sínum að athuga hvort ástæða sé til þess að taka þau úr sambandi.

Þessi vinna er hluti af því að við getum öll haldið áfram að njóta þeirrar dýrmætu auðlindar sem heita vatnið okkar er. Frekari upplýsingar og kort af áhrifasvæðinu má finna hér:https://www.veitur.is/truflun/minni-kraftur-a-heita-vatninu

Starfsfólk Veitna.

Til baka