Tilkynning frá Veitum

26.08.2021

Kæru viðskiptavinir

Veitur eru að endurnýja hitaveitulagnar frá Bolholtsstöð til vesturs og tengja við núverandi lagnir á horni Skipholts og Bolholts. Núverandi lagnir frá árinu 1964 sem er kominn tími á að endurnýja. Á framkvæmdartíma verður Bolholt 6-8 gert að einstefnu frá Skipholti.

Framkvæmdartími er áætlaður 31.08.2021 – 01.12.2021.

Við þökkum ykkur þolinmæðina og vonum að þetta rask valdi ykkur ekki of miklum óþægindum.

Kveðja, starfsfólk Veitna

 

Til baka