17 nýjar íbúðir afhentar

24.09.2021

Í dag, föstudaginn 24.september, voru 17 nýjar íbúðir við Kapellustíg 15, afhentar til leigutaka.

Um er að ræða fyrsta fjölbýlishúsið af fjórum sem Eykt byggir fyrir Byggingafélag námsmanna og eru staðsettar í Grafarholti. Samtals verða íbúðirnar 56 sem bætast við í þessum áfanga en næsta hús verður tilbúið í lok þessa árs. Verklok eru svo áætluð í apríl/maí 2022.  

Við óskum nýjum leigutökum til hamingju með íbúðirnar.

 

Til baka

Myndir með frétt