Tilkynning frá Veitum

08.10.2021

Kæri viðskiptavinur

Vegna fyrirhugaðra byggingaframkvæmda í Bolholti þarf að færa lagnir hitaveitu. Af þeim sökum verður lokað fyrir heitt vatn í Skipholti og nálægum götum, frá kl. 03:00 aðfararnótt miðvikudagsins 13. október til kl. 24:00. Íbúar í Norðurmýri, Holtum og Hlíðum norðan Miklubrautar geta fundið fyrir lægri þrýstingi á heita vatninu á meðan á framkvæmdum stendur.

Við minnum ykkur á að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en nauðsyn krefur til að halda hita í húsum og vonum að þetta valdi ekki of miklum óþægindum.

Með kveðju,
starfsfólk Veitna

Til baka